Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að viðbrögð fjölmiðlamanna og stjórnenda hjá RÚV við úrskurði siðanefndar um brot fréttamanns á siðareglum RÚV vegna umfjöllunar um Samherja vera með miklum endemum.

„Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar um að fréttamaðurinn hafi í nokkrum tilvikum brotið alvarlega gegn siðareglum RÚV hefði ekki átt að koma nokkrum manni á óvart sem hefði kynnt sér reglurnar,“ skrifar Brynjar í færslu á Facebook.  „Í stað málefnalegrar gagnrýni á niðurstöðuna, eða sýna jafnvel bara auðmýkt og ræða hvort nauðsynlegt sé að breyta reglunum, sem þeir sömdu sjálfir, er ráðist að nefndarmönnum og þess sem kvartaði með fádæma ofstæki. Birtar eru myndir af nefndarmönnum eins og hverjum öðrum sakamönnum og kærandi sakaður um að vera ógn við lýðræðið vegna kæru á saklausan sendiboðann.“

Brynjar segir að nú hafi RÚV í samtals níu ár verð að ljóstra upp um hin ýmsu brot Samherja.

„Fyrst um undirverðlagningu á sjávarafurðum og gjaldeyrisbrot. Óþarfi er að rifja upp endalok þeirra mála. Nú síðast skattsvik og peningaþvætti og jafnvel fleiri fjármunabrot í tengslum við norska bankann DNB og svo má ekki gleyma mútunum í Namibíu. Eitthvað virðist djúpt á skattsvikunum og peningaþvættinu í Noregi og rannsókn lokið þar þótt það hafi farið fram hjá þeim á RÚV. Við verðum að vona að eitthvað komi út úr þessum mútumálum því annars hefur þessi níu ára barátta RÚV verið til einskis.“

Að sögn Brynjars er fjölmiðlamenn sendiboðar og mikilvægir sem slíkir.

„En þeir eru meira en það. Þeir eru þátttakendur í pólitík, sem er út af fyrir sig allt í lagi. Einhverjir verða að stunda pólitík því ekki er mikið um það hjá þjóðkjörnum fulltrúum. En þeir hjá RÚV verða að muna að um þá gilda sérstakar reglur, bæði sérstök lög um RÚV og svo siðareglur. Virðist aldrei hafa nokkrar afleiðingar þegar lög og siðareglur eru brotnar á þeim bæ. Ekkert tiltal, hvað þá áminning eða eitthvað meira.

Þetta virðist vera stjórnlaust batterí og litið á það eins og hvert annað einkafirma starfsmanna. Pólitíkin getur ekki tekið á þessu frekar en öðru enda stjórnmálamenn búnir að færa öll völd til umboðslauss fólks úti í bæ. Uppljóstrarar eru mikilvægir og ekki síður núna en á dögum Krists. Mér finnst að Föstudagurinn langi eigi að vera dagur uppljóstrara og legg það til hér með.“