Fjárheimild í fjárlagafrumvarpi 2018 til Ríkisútvarpsins er aukin um 198 milljónir króna. Það er í samræmi við áætlun um innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi að því er segir í fréttatilkynningu frá Menntamálaráðuneytinu „enda litið svo á að tekjur af útvarpsgjaldinu séu markaðar Ríkisútvarpinu.“ eins og þar segir.

Hækkunin stafar annars vegar af því að þeim fjölgar sem greiða útvarpsgjald og hins vegar er um að ræða 2,2%  verðlagsuppfærslu í samræmi við almennar verðlagshækkanir og önnur krónutölugjöld samkvæmt tekjuáætlun fjármála- og efnahagsráðuneytisins og gjaldið fer því úr 16.800 kr. í 17.200 kr.

Framlögin taka mið af samningi Ríkisútvarpsins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um fjölmiðlun í almannaþágu dags. 5. apríl 2016 þar sem segir m.a. að leitast skuli við að framlög til Ríkisútvarpsins haldi verðgildi á milli ára.