WOW air flutti 224 þúsund farþega til og frá landinu í nóvember eða um 30% fleiri farþega en í nóvember árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 88% en var 87% í nóvember á síðasta ári. Samanborið við mánuðinn á undan lækkar þó sætanýting um tvö prósentustig en hún var 90% í október en í þeim mánuði fjölgaði farþegum einnig um 46% samanborið við mánuðinn á undan.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 2.6 milljónir farþega sem er 73% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku. WOW air hefur að undanförnu aukið framboð á flugi til bæði New York og Washington D.C. Þá mun WOW air þar að auki fljúga til tveggja flugvalla í New York, EWR og JFK.