Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði í vikunni frá kæru Pizza-Pizza ehf., rekstraraðila Domino‘s á Íslandi.

Félagið kærði þá ákvörðun heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar að þar sem unnt er að snæða pítsurnar á staðnum þyrftu viðskiptavinir að hafa greiðan aðgang að salerni. Ella þyrftu borð og stólar að víkja.

Kærunni var vísað frá þar sem um tilmæli var að ræða en ekki stjórnvaldsákvörðun. Birgir Örn Birgisson er forstjóri Domino‘s á Íslandi.