Það fóru rétt rúmlega 29 þúsund farþegar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júní en þeir voru um 787 þúsund á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir 96,3 prósent samdrætti. Þetta kemur fram á vef Túrista .

Farþegum fækkaði hlutfallslega nánast jafn mikið á Arlanda í Stokkhólmi, Vantaa í Helsinki og í Kaupmannahöfn.

Í Ósló var aðeins minni samdráttur eða 86,2 prósent og skýringin liggur að mestu í því að innanlandsflugið í Noregi hefur ekki dregist eins mikið saman og alþjóðaflugið.

Keflavíkurflugvöllur býr reyndar við þá sérstöðu meðal vestrænna alþjóðaflugvalla að þar takmarkast umsvifin við millilandaflug. Út í heimi geta farþegar aftur á móti tengt saman innanlands- og alþjóðaflug.