Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 23,6% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-14. mars. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 15. febrúar. Samfylkingin mældist með 13,8% fylgi, sem er rúmlega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Píratar mældust með 13,6% fylgi, sem er rúmum þremur prósentustigum meira en í síðustu mælingum. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um rúm tvö prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði lítillega en 41,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 42,8% í síðustu mælingu.

  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,4% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,1% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,4% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,5% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 1,9% samanlagt.