Samsett hlutfall var 98,4% í maí en það var 112,8% í maí 2018. Þeta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Samsett hlutfall það sem af er ári er 100,0% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 96,9%.

Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í maí var 1,5% en ávöxtun frá áramótum er 8,0%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,4 milljarð króna í tjónabætur í maí og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 7,1 milljarð króna í tjónabætur það sem af er ári.