Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir afar líklegt að leggja þurfi fram fimmtu fjármálastefnuna á næsta ári þar sem þær hagvaxtarforsendur sem liggja að baki nýútkominni endurskoðaðri fjármálastefnu byggi á hæpnum hagvaxtarforsendum. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í morgun.

„Þær hagvaxtarforsendur sem liggja að baki þessari endurskoðuðu fjármálastefnu byggja á því að það verði samdráttur í ár en síðan eigi hagkerfið að taka við sér á næsta ári. Þá verði 2,6 prósenta hagvöxtur. Við teljum einfaldlega að vegna óvissunnar í íslensku efnahagslífi og þess að við vitum ekki hver áhrifin verða, sé það fullbjartsýnt að áætla að viðsnúningurinn verði svona hraður.“

Fjármálastefnan byggir á uppfærðri hagvaxtarspá Hagstofunnar sem gerir ráð fyrir að hagkerfið muni dragast saman um 0,2% á næsta ári en þó er gert ráð fyrir svigrúmi.

„Það er fulllítið. Það er gert ráð fyrir að hallinn geti verið 0,4 prósent af landsframleiðslu, sem eru um 10 til 15 milljarðar. Við bendum á að afkoman í ár er 40 milljörðum lakari vegna breyttra efnahagsforsenda. Það blasir við að hagvaxtarspáin er í bjartsýnni kantinum og á sama tíma er svigrúmið ekki mikið,“ segir Ásdís.

„Gallinn við fjármálareglurnar sem miðað er við í dag er að þær taka ekki tillit til hagsveiflunnar,“ segir Ásdís. Telur hún best ef afkomuviðmið stjórnvalda væru miðuð út frá hagsveiflu.

Þrátt fyrir að búið sé að greiða niður skuldir ríkisins hefði stefna síðustu ára þurft að vera aðhaldssamari að mati Ásdísar.

„Miðað við stöðuna í dag þá teljum við að áherslurnar eigi að vera á að minnka umsvif hins opinbera,“ segir Ásdís. „Það er hægt með aukinni skilvirkni og hagræðingu. Þá um leið að skapa svigrúm til að lækka skatta á fyrirtæki og heimili. Skattar hækkuðu í síðustu niðursveiflu og hafa lítið lækkað í uppsveiflunni, þannig að nú er rétti tíminn til þess. Svo eru líka eignir sem ættu ekki að vera í eigu ríkisins. Má þar helst nefna Landsbankann, Íslandsbanka, Keflavíkurflugvöll og Íslandspóst fyrir utan þær tæplega þúsund fasteignir sem eru í eigu ríkisins. „Við hvetjum stjórnvöld til að selja þær eignir eins fljótt og auðið er,“ segir hún að lokum.