Már Guðmundsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir fullyrðingar tveggja bankaráðsmanna Seðlabanka Íslands vera rangar. Fullyrðingarnar sem um ræðir komu fram í bókun tveggja bankaráðsmanna, þeirra Sigurðar Kára Kristjánssonar og Þórunnar Guðmundsdóttur í greinagerð bankaráðs Seðlabanka Íslands til forsætisráðherra, vegna Samherjamálsins svokallaða.

Ofangreindir bankaráðsmenn létu, eins og Viðskiptablaðið sagði frá í nýútgefnu tölublaði, harðorða bókun fylgja greinargerð ráðsins til forsætisráðherra. Átelja þau afskipti Seðlabankans af störfum bankaráðs þegar ráðið hóf vinnu sína við að svara forsætisráðherra. Tiltaka þau minnisblað sem lögfræðiráðgjöf Seðlabankans sendi bankaráði með yfirskriftinni „Athugasemdir varðandi ósk forsætisráðherra um greinargerð bankaráðs vegna dóms Hæstaréttar íslands í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja." Í minnisblaðinu segir að lögfræðiráðgjöf bankans geri „verulegar athugasemdir við fyrirhuguð efnistök" bankaráðs í málinu.

Í bókun tvímenninganna segir að lögum samkvæmt eigi Seðlabankinn ekki að hafa eftirlit með eigin embættisfærslum og því sé það ekki hans hlutverk að reyna að hafa áhrif á svör bankaráðs við fyrirspurn ráðherra þegar bankaráðið sinni lögbundnu eftirlitshlutverki sínu. Telja þau afskiptin „óforsvaranleg".

Í yfirlýsingu sinni segir Már að fullyrt sé í bókuninni að minnisblað lögfræðiráðgjafar Seðlabankans hafi falið í sér tilraun til að koma í veg fyrir að bankaráðið svaraði ráðherra. Þessi fullyrðing komi verulega á óvart og sé fjarri öllu sanni.

Yfirlýsingu seðlabankastjóra má sjá í heild sinni hér að neðan:

Með greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands til forsætisráðherra, dags. 21. febrúar 2019, fylgdi bókun tveggja bankaráðsmanna þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við minnisblað frá lögfræðiráðgjöf bankans, dags. 7. desember 2018, um efnistök í greinargerð ráðsins með svari til ráðherra sem þá lá fyrir. Í bókuninni er það kallað óforsvaranleg afskipti af störfum bankaráðs. Í henni er fullyrt að minnisblaðið hafi falið í sér tilraun Seðlabankans til að koma í veg fyrir að bankaráðið svaraði ráðherra. Þessi fullyrðing kom verulega á óvart og er fjær öllu sanni.

Samkvæmt lögum sit ég bankaráðsfundi með tillögurétt og tek þátt í umræðum. Ég vík þó af fundi ef bankaráð ákveður. Ég sat ekki þá fundi þar sem bankaráðið vann að greinargerð sinni en flesta fundi þar sem bankinn lagði fram gögn í málinu eða útskýrði sjónarmið sín. Þá sat ég fund þar sem rætt var um fyrirkomulag vinnunnar og aðkomu starfsliðs bankans að henni. Á engum þessara funda svo mikið sem ýjaði ég að því að bankaráðið ætti ekki að svara forsætisráherra. Reyndar þvert á móti. Auk þess gaf ég starfsliði bankans fyrirmæli um að aðstoða bankaráðið eftir því sem um væri beðið og senda fljótt og greiðlega umbeðnar upplýsingar og álitsgerðir. Það mætti eftir atvikum fara beint og án yfirferðar minnar enda bankaráðið hluti af Seðlabankanum. Fjölmargir starfsmenn lögðu á sig mikla vinnu til þess að aðstoða bankaráðið á þeim fjölmörgu viðbótarfundum sem til þurfti til þess að klára svarið til ráðherra. Einnig réð bankinn utanaðkomandi starfsmann til að vinna með bankaráðinu að greinargerð sinni.

Formaður bankaráðs óskaði hinn 5. desember eftir skriflegum athugasemdum frá Seðlabankanum við drögum að svari til ráðherra sem þá lágu fyrir. Minnisblað lögfræðiráðgjafar var hluti af þeim skriflegu athugasemdum og barst ráðinu 7. desember 2018. Efni þess laut að þeim lagaákvæðum sem eiga við um eftirlitsvald ráðherra gagnvart stofnun eins og Seðlabanka Íslands. Lögfræðiráðgjöf bankans er bankaráði innan handar eftir því sem óskað er eftir enda eins og áður segir er bankaráðið hluti Seðlabankans. Álit sem þannig eru veitt eru þá  unnin af bestu vitund og samvisku lögfræðinga bankans en það er síðan undir bankaráðinu sjálfu komið í hvaða mæli það er sammála slíkum álitum. Það er ekkert við það að athuga að bankaráðið eða einstakir bankaráðsmenn geri efnislegar athugasemdir við slík álit og að um þau eigi sér stað rökræn efnisleg umræða. Í þessu tilfelli var því ekki til að dreifa.

Bankinn og starfsfólk hans veitir bankaráði upplýsingar og álit. Það hefur hins vegar engin tök á að stöðva ákvarðanatöku bankaráðs. Bankaráðið er með eigin formann og getur fundað án seðlabankastjóra og annarra starfsmanna bankans og tekið þær ákvarðanir sem það vill.

Að lokum er rétt að árétta að umrædd bókun kemur mér og þeim sem í hlut eiga innan bankans verulega á óvart. Ekki var gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum varðandi þær harðorðu ásakanir sem fram koma í umræddri bókun áður en hún var birt.

Már Guðmundsson

seðlabankastjóri