Eitt af forgangsverkefnum Heimavalla er endurskipulagning á eignasafni félagsins þar sem félagið hefur lagt áherslu á að selja stakar eignir og einingar sem falla ekki að stefnu félagsins. Endurskipulagning eignasafnsins gekk vel á árinu 2018 og seldi félagið 210 íbúðir fyrir samtals 6,2 milljarða króna, þar af var eignasala á fjórða ársfjórðungi 2,9 milljarðar króna. Heildareignasala félagsins á árunum 2018 til 2020 er ráðgerð um 17 milljarðar króna en á móti hyggst félagið bæta við sig nýjum hagkvæmum eignum. Greint er frá þessu í tilkynningu Heimavalla til Kauphallarinnar.

Einn liður þessa verkefnis er endurskipulagning eignasafnsins á Ásbrú og hefur félagið ákveðið að selja níu fjölbýlishús á Ásbrú sem tilheyra svokölluðu 900 hverfi. Um er að ræða 122 íbúðir sem eru að meðaltali 155 fm að stærð og 32 stúdíóíbúðir sem eru ríflega 40 fm hver. Eftir sölu þessa eignasafns mun félagið eiga og reka 583 íbúðir á Ásbrú og er meðalstærð þeirra 98 fm.

Heimavellir hafa gert samkomulag við fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans um sölu þessa eignasafns sem veitir frekari upplýsingar um söluna í netfanginu [email protected] .