Sensa hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu HUX ráðgjöf og bætast allir starfsmenn félagsins við hóp 120 starfsmanna Sensa. Með sameiningu félaganna tveggja næst mikil styrking á sviði Office 365, rafrænna ferla, sjálfvirknivæðingar og forritarateymi Sensa.

Sensa er íslenskt upplýsingatæknifyrirtæki og spannar starfsemi félagsins allt frá rekstri, hýsingu og skýjalausnum til sérfræðiþjónustu og ráðgjafar.

Undanfarin ár hefur Sensa meðal annars byggt markvisst upp þekkingu á hagnýtingu Microsoft lausna, til dæmis hvaða leyfi eru hagkvæmust, hvernig best sé að flokka og skipuleggja upplýsingar, tryggja öryggi þeirra og flæði og auka virði þeirra lausna fyrir starfsemina.

Með sameiningu HUX við Sensa hyggst styrkja stöðu sína þegar kemur að því að skapa umhverfi þar sem lausnir Microsoft nýtast sem best. Sérfræðingar HUX hafa áralanga reynslu af skjalastjórnun og smíði virðisaukandi þjónustu innan Microsoft mengisins.

Fjölmörg fyrirtæki reiða sig á lausnir frá Microsoft í starfsemi sinni og varðveita þar mikil verðmæti í formi ýmissa gagna og upplýsinga um reksturinn. Á undanförnum mánuðum og misserum hefur Microsoft gert umtalsverðar breytingar á leyfismálum og skýjalausnum sínum.

Mikið er í húfi fyrir fyrirtæki að tryggja einfalt og þægilegt rekstrarumhverfi þar sem nýjar lausnir eru innleiddar fumlaust og af öryggi. Á það við um allt frá kaup á leyfum, yfir í skipulag og vistun gagna. Hjá Sensa er hægt að fá aðstoð við alla þessa þætti, frá grunnvinnu til þjónustunnar sem byggð er þar ofan á.