Félagsaðilar í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) koma saman til félagsfundar á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 12. október kl. 14 til að ræða þá alvarlegu stöðu sem framundan er í rekstri fjölmargra heilbrigðisfyrirtækja og stofnana víða um land sem boðuð er í framlögðu fjárlagafumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2019 boðar ríkisstjórnin áframhaldandi niðurskurð á greiðslum til flestra aðildarfélaga SFV með sama hætti og þau hafa staðið frammi fyrir undanfarin ár, ekki síst á yfirstandandi ári. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar stendur einnig til að skerða greiðslurnar enn frekar árin 2020 og 2021, að minnsta kosti. Standi þessi ákvörðun í meðförum Alþingis í umræðum um fjárlagafrumvarpið verður niðurskurðurinn meiri árin 2020 og 2021 heldur en á yfirstandandi ári og fyrirsjáanlegur er á næsta ári. Þetta kemur nokkuð óvart þar sem í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er meðal annars sérstaklega tiltekið að huga þurfi að rekstrargrunni hjúkrunarheimilanna," segir í tilkynningunni.

„Þrátt fyrir boðaða aukningu á framlögum til heilbrigðiskerfisins er augljóst af lestri frumvarpsins að sú aukning er að langstærstum hluta ætluð Landspítala og opinberum heilbrigðisstofnunum. Í frumvarpinu er á hinn bóginn gert ráð fyrir að skera áfram niður rekstrarframlög til hjúkrunar-, dvalar -, og dagdvalarrýma þótt ætlunin sé að fjölga slíkum rýmum. Vísbendingar eru um að það viðbótarfjármagn hafi verið vanreiknað auk þess sem ríkisvaldið hefur lagt ýmsar nýjar og fjárhagslega íþyngjandi kröfur á aðildarfélög SFV undanfarin misseri án þess að kröfurnar hafi verið fjármagnaðar af hálfu ríkisins. Vegna þeirrar stöðu hafa viðræður SFV við Sjúkratryggingar um nýjan rammasamning fyrir dagdvalir siglt í strand en samningafundir hafa ekki verið haldnir frá því í lok mars. Rammasamningur um hjúkrunar- og dvalarrými rennur út um áramótin og er fyrirhugaður samningur sá langstærsti í sögu Sjúkratrygginga."

Að mati stjórnar SFV er nauðsynlegt að kalla saman félagsfund til að ræða þá alvarlegu stöðu sem mun að óbreyttu blasa við í rekstri fyrirtækjanna vegna boðaðra aðgerða ríkisvaldsins. Ekki er ólíklegt að sum aðildarfélög SFV muni þurfa að taka rekstur sinn til endurskoðunar til að mæta áframhaldandi niðurskurði framlaga til ársins 2021 að minnsta kosti, annað hvort með því að leggja niður ákveðna þjónustuþætti eða breyta rekstrarfyrirkomulagi til að afla nýrra tekna á öðrum vettvangi óháðum framlögum frá ríkinu.