Núverandi og fyrrverandi meðlimir íslensku hljómsveitarinnar Sigur Rós segja í samtali við breska blaðið Guardian að þeir eigihættu á gjaldþroti og jafnvel fangelsi vegna óréttláttrar saksóknar fyrir skattalagabrot. Segjast meðlimirnir að saksóknin sem  hafi leitt til þess að þeir hafi misst trú á eigið land.

Í vor ógilti Landsréttur frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjögurra liðsmanna sveitarinnar og sögðu héraðsdóminn verða að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar því þeir hafi ekki sætt álagi vegna stórs hluta vantaldra tekna sinna.

Frávísunin var byggð á þeim rökum að Mannréttindadómstóll Evrópu hefur áður þrívegis dæmt íslenska ríkinu í óhag fyrir að vera með tvöfalda refsingu, og tvöfalda málsmeðferð fyrir sama brotið þegar sótt er til saka fyrir stórfelld skattsvik ofan á að viðkomandi sé gerð sekt á stjórnsýslustigi.

Georg Holm í Sigur Rós
Georg Holm í Sigur Rós
© BIG (VB MYND/BIG)
Hljómsveitarmeðlimirnir, þeir Georg Holm og Jón Þór Birgisson, auk fyrrverandi meðlimanna Kjartans Sveinssonar og Orra Páls Dýrasonar hafa þegar viðurkennt að hafa vantalið skattstofn um 151 milljón króna á árunum 2011 til 2014, þó þeir segist ekki hafa vitað af brotunum og kenna endurskoðanda sínum, Gunnari Ásgeirssyni sem þá starfaði fyrir PwC um.

„Við erum tónlistarmenn, svo við réðum fólk sem við töldum að væru þeir bestu í heiminum. Og hann brást okkur,“ hefur Guardian eftir Georg, en hann er sagður einn þeirra hljómsveitarmeðlima sem íhugi alvarlega að yfirgefa landið vegna málsins.

„Við lögðum lykkju á leið okkar til að laga þetta, finna út hvað gerðist og borga peninginn til baka. Nú á hins vegar að rétta yfir okkur fyrir sama brotið á ný. Við erum ekki yfir nein lög hafin á Íslandi, en þessi lög eru ekki rétt. Við erum þess vegna að segja frá þessu því við erum í þeirri stöðu að á okkur er hlustað.“

Söngvari sveitarinnar, Jónsi, hefur þegar flutt til Los Angeles, en sama íhuga þeir Kjartan og Orri Páll að gera samkvæmt greininni.

„Við höfum í mörg ár komið landinu á framfæri, nú fara þau með okkur eins og glæpamenn,“ segir Jónsi.