Sigursteinn Ingvarsson hefur nú sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samherja. Ástæðuna segir hann hafa verið húsleit gjaldeyriseftirlits Seðlabankans. Þetta kemur fram í bréfi sem Sigursteinn skrifaði til samstarfsfólks síns, þar sem hann lýsir afsögn sinni yfir.

„Sú árás sem gerð var á fyrirtækið og beindist síðar að mér og fleirum persónulega reyndist mér afskaplega þungbær,“ segir Sigursteinn í bréfi sínu. Hann vísar þá til fyrrnefndrar húsleitar, en sérstakur saksóknari og Seðlabankinn gerðu leit hjá Samherja vegna þess að grunur lék á um að félagið hefði brotið gegn lögum um gjaldeyrismál.

Sigursteinn segir í bréfi sínu að eftir húsleitina hafi honum ekki tekist að vinna sig úr kulnun og deyfð sem lagðist yfir hann, þrátt fyrir að ekkert saknæmt hefði átt sér stað. Hann segir jafnframt að rafhlöður sínar séu tómar og tíma þurfi til að hlaða þær upp á ný.

Hér að neðan má lesa bréf Sigursteins í heild sinni:

Ég hef tekið ákvörðun um að láta af störfum hjá Samherja hf. Eins og þið eflaust gerið ykkur grein fyrir þá var þetta afar erfið ákvörðun fyrir mig og okkur hjónin bæði enda hef ég ávallt verið mikill Samherjamaður og gríðarlega stoltur af því að vinna hjá þessu fyrirtæki. Í starfi mínu hef ég tekist á við mörg spennandi og krefjandi verkefni, langflest skemmtileg en sum ekki. Eitt af þeim verkefnum sem ekki hafa verið skemmtileg er Seðlabankamálið.

Sú árás sem gerð var á fyrirtækið og beindist síðar að mér og fleirum persónulega reyndist mér afskaplega þungbær. Það var að sjálfsögðu mikill léttir þegar embætti sérstaks saksóknara komst að þeirri niðurstöðu í fyrrahaust að ekkert saknæmt hefði átt sér stað og tók reyndar sérstaklega fram í bréfi til mín að ljóst væri að unnið hefði verið af kostgæfni að því að skila gjaldeyri til landsins. Þrátt fyrir þessa gleðilegu niðurstöðu hef ég ekki náð að vinna mig út úr þeirri kulnun og deyfð sem helltist yfir mig í kjölfar þessa máls.

Í dag er staðan sú að rafhlöðurnar eru gjörsamlega tómar og ljóst að það mun taka einhvern tíma að hlaða þær aftur. Starf mitt er þess eðlis að ekki er mögulegt að hverfa af vaktinni í langan tíma og því ljóst að ný og fersk manneskja þarf að taka við boltanum. Ég hef starfað í rúm 14 ár hjá Samherja þar sem ég hef eignast marga góða vini og ég vil þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf í gegnum öll þessi ár. Megi sá mikli kraftur og elja sem í ykkur býr halda áfram að láta fyrirtækið Samherja vaxa og dafna um ókomna tíð.

Við Inga viljum þakka þeim frændum Þorsteini og Kristjáni fyrir þann ómetanlega skilning sem þeir sýndu þessari ákvörðun okkar og fyrir að hafa ávallt staðið þétt við bakið á okkur. Ég mun síðan að sjálfsögðu sinna minni daglegu vinnu næstu mánuðina og aðstoða við að koma mínum eftirmanni inní starfið þegar ákvörðun þar um liggur fyrir. Með góðri kveðju, Sigursteinn og Inga Vala.