Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Símanum í vil í staðfestingarmáli Símans hf. gegn Vodafone (Fjarskipta) vegna lögbanns sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagi á 16. desember 2015. Lögbannið var sett á vegna upptöku Fjarskipta á sjónvarpsefni sjónvarpsstöðvanna Sjónvarps Símans (áður SkjárEinn) og ólínulega miðlun myndefnis.

„Ofangreint mál er eitt af þeim sem félagið stendur í málarekstri vegna, eins og fram kemur í skýringu 17 með samstæðuárshlutareikningi Símans hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2017,“ segir í tilkynningu frá Símanum til Kauphallarinnar.

Héraðsdómur samþykkti kröfu Símans og staðfesti lögbann Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Héraðsdómur taldi að aðgerðir Fjarskipta væru ólögmætar og hefðu brotið gegn hagsmunum Símans með því að taka upp og miðla sjónvarpsefni Símans þrátt fyrir að Síminn hefði óskað eftir því að Fjarskipti léti af umræddri háttsemi að því er kemur fram í tilkynningunni. „Síminn hf. fagnar niðurstöðunni,“ segir að lokum.