Síðastliðið laugardagskvöldið urðu truflanir á sjónvarpsþjónustu Símans þegar að fyrirvaralaus DDoS netárás var gerð á netkerfi Símans, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Engar truflanir urðu á hefðbundinni fjarskiptaþjónustu en sjónvarpsþjónusta Símans varð fyrir truflunum í rúma eina og hálfa klukkustund. Sjálfvirk eftirlitskerfi brugðust við ásamt því að tæknifólk Símans og samstarfsaðila hófst handa við að minnka áhrif árásarinnar og að lokum stöðva áhrif hennar. Árásin sjálf hélt þó áfram en kerfi Símans héldu og tryggðu að hún myndi ekki valda frekari truflunum,“ segir í tilkynningunni.

Vegna þess hve árásin hafi verið dreifð hafi tekið nokkurn tíma að ná utan um hana. „Biður Síminn viðskiptavini sína afsökunar á þeim truflunum sem urðu á laugardagskvöldið.“

Í framhaldinu muni Síminn efla sjálfvirk eftirlitskerfi sem bregðast við árásum sem þessum með enn skilvirkari hætti. Erfitt geti verið að kæfa fyrirvaralausar árásir sem þessar á stuttum tíma en Síminn muni yfirfara ytra netlag sitt og tryggja að sem flest kerfi séu varin og í öruggu skjóli eldveggja og sjálfvirkra eftirlitskerfa.

Þá segir í tilkynningunni að árásaraðilar hafi ekki komist inn fyrir varnir Símans og gátu því með engu móti nálgast gögn Símans, heldur hafi aðeins verið um að ræða dreifða netárás sem olli miklu tímabundnu álagi á kerfi Símans.

Mun árásin þegar hafa verið tilkynnt til CERT-IS, netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar.