Í kjölfarið á sýndum áhuga á hlut HS Orku í Bláa Lóninu, tilkynnir félagið að það hyggst kanna mögulega sölu á 30% hlut sínum  í Bláa Lóninu í heild eða að hluta. HS Orka hefur falið Stöplum Advisory að ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra ferlinu.

„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, forstjórinn ásamt stjórnarmanni í HS Orku sitja í stjórn Bláa Lónsins.

„Bláa Lónið er nú með umfangsmikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa Lónsins ekki að kjarnastarfsemi HS Orku sem er framleiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli.“