Rio Tinto hefur í hyggju að hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík (ISAL) til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar og bæta samkeppnisstöðu þess. Allar leiðir verða skoðaðar, meðal annars framleiðsluminnkun og mögulega lokun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rio Tinto til kauphallar í London .

Í tilkynningunni segir að áætlað sé að rekstur ISAL verði óarðbær til skemmri og meðallangs tíma. Ástæðurnar fyrir því séu ósamkeppnishæft orkuverð og lágt verð á áli í sögulegu samhengi. Félagið hyggst hefja samtal við stjórnvöld og Landsvirkjun með það að marki að gera álverið arðbært og samkeppnishæft á alþjóðamarkaði.

„Við höfum unnið markvisst að því að bæta afkomu ISAL. Álverið er engu að síður óarðbært og ekki samkeppnishæft í krefjandi markaðsaðstæðum vegna hás raforkukostnaðar. [...] Framlag ISAL til íslensks efnahagslífs er umtalsvert og við munum vinna náið með þeim sem eiga gagnkvæma hagsmuni að því að treysta framtíð ISAL, þ.m.t. ríkisstjórn, Landsvirkjun, starfsfólki, stéttarfélögum og sveitarfélaginu,“ er haft eftir forstjóranum Alf Barrios.

Framleiðsla ISAL hefur verið minnkuð nú þegar í 85% af framleiðslugetu. Búist er við því að endurskoðunarvinnu verði lokið á fyrri helmingi þessa árs. Í Straumsvík starfa um 500 manns.