Ríkisstjórnin hefur ákveðið að herða aðgerðir á landamærum og þurfa bólusettir ferðamenn sem koma hingað til lands nú að framvísa neikvæðu PCR-próf eða antigen hraðprófi. Ráðstafanirnar taka gildi eftir viku.

Þá verður hvatt til þess að fólk með búsetu eða tengslanet á Íslandi fari í skimun við komuna til landsins. Þeir sem eru óbólusettir munu enn þurfa að sýna fram á neikvætt próf og fara í tvöfalda skimun.

Sjá einnig: „Að öllu leyti verulega vond hugmynd“

Smitum hefur fjölgað talsvert innanlands frá því að landamærin voru opnuð og eru aðgerðirnar liður í reyna að fækka þeim.