Þýskt dagblað hefur búið til skemmtilegan leik þar sem lesendur eru hvattir til að styðja lítilmagnann á Evrópumeistaramótinu og sleppa sínum innri víkingi lausum með góðu Huh!

Þegar það er gert þá klappar íslenska landsliðið undir forystu Arons Einars Gunnarsson fyrirliða. Þess má geta að Þýska landsliðið er enn með í keppninni og mætir Ítalíu á laugardaginn klukkan 7.