Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,23% í dag og endaði í 1,794 stigum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 3,21% í 345 milljóna króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Reita, eða um 0,61% í 117 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa í Össuri eða um 1,51% en einungis 2 milljón króna viðskipti voru með bréfin. Einnig lækkaði gengi bréfa Icelandair um 1,16% í 378 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæpur 1,9 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,3 milljarðar króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 5,3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í litlum sem engum viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 5,2 milljarða króna viðskiptum.