Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar. Fyrirtækið hefur jafnframt staðfest lánshæfiseinkunnina BBB fyrir lang- og skammtímaskuldir, með og án ríkisábyrgðar.

Að sögn S&P Global Ratings endurspeglar breytingin á horfunum jákvæða þróun Landsvirkjunar m.a. með tilliti til aukins fjárhagslegs styrkleika og minnkandi markaðsáhættu.

Jákvæðu horfurnar endurspegla möguleikann á hækkun á lánshæfiseinkunn fyrirtækisins innan tveggja ára ef Landsvirkjun viðheldur bættri fjárhagsstöðu að því er segir í tilkynningu frá félaginu í kauphöllinni.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um segir Hörður Arnarsson forstjóri félagsins fjárhagsstöðu félagsins mjög góða en stefnt er að því að félagið greiði töluverðan arð inn í áætlaðan Þjóðarsjóð á næstu árum og áratugum.