Landsframleiðslan eykst um 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 vegna einkaneyslu og fjárfestingar ef hagvaxtarspá Hagstofu gengur eftir. Hagstofan hefur nú gefið út þjóðhagsspá í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2016 til 2021.

Þá er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 og nærri 3% árlega árin 2018 - 2021. Þá mun innlend eftirspurn, fyrst og fremst einkaneysla og fjárfesting, standa að baki hagvextinum fyrstu árin. Árið 2016 er spáð 6,6% aukningu þjóðarútgjalda.

Einkaneysla er talin aukast um 6% árið 2016, 4,8% 2017, 3,6% árið 2018 og nærri 3% á ári eftir það. Fjárfesting eykst um 16% árið 2016 og 6,4% árið 2017 en þá verður stóriðjufjárfesting í hámarki. Samneysla eykst hægt í samræmi við áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum.

Afgangur verður af utanríkisviðskiptum allan spátímann, lítið eitt minnkandi í fyrstu þegar mestur kraftur er í einkaneyslu og fjárfestingu, en stöðugur eftir það, ef hagspáin verður að veruleika. Verðbólga hefur verið lítil síðustu ár, en búist er við að hún aukist seinni hluta ársins 2016 og að hún haldist nokkuð yfir verðbólgumarkmiði þar til líður á spátímann.

Laun og kaupmáttur þeirra hafa hækkað mikið að undanförnu. Nokkur spenna er á vinnumarkaði en atvinna og eftirspurn eftir vinnuafli hafa aukist mjög að mati Hagstofu. Megnið af launabreytingum út árið 2018 eru nú bundnar  af kjarasamningum.