Greiningardeild Arion banka spáir 0,35% hækkun á vísitölu neysluverðs í nóvember sem er yfir bráðabirgðaspá greiningadeilarinnar frá því í lok október sem hljóðaði upp á 0,25% hækkun. Samkvæmt spánni hækkar 12 mánaða taktur verðbólgunnar í 3,4% úr 2,8% frá því í síðasta mánuði. Hagstofan mælir vísitöluna 12. til 16. nóvember og mælingin verður birt miðvikudaginn 29. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Greiningardeild Arion banka .

Helstu áhrifaþættir á vísitölu neysluverðs til hækkunar í nóvember eru að mati Greiningardeildar nánast allir undirliðir aðrir en eldsneyti og flugfargjöld til útlanda. Af liðum til hækkunar má helst nefna matarkörfuna, farartæki, kostnaður við húsnæði, áfengi, tómstundir (m.a. sjónvörp ), fatnaður og húsgögn. Áhrif krónunnar gætir í öllum þessum liðum. Í skammtímalíkani Greiningardeilar tekur það um 1-2 mánuði frá því að krónan veikist þar til fyrstu áhrifa gætir í hækkandi verðlagi.

Bensínverð lækkað um 0,6%

Bensínverð lækkaði um helgina og borið saman við verð í síðustu mælingarviku þá hefur bensínlítrinn lækkað í 228,7 kr. úr 230,0 kr. sem er lækkun um 0,6%. Dísillítrinn hefur hinsvegar hækkað í 226,7 kr. úr 224,2 kr. eða um 1,1%. Heildaráhrifin er 0,009% til lækkunar á vísitölunni. Hráolían hefur lækkað mikið í verði mælt í Bandaríkjadal en á sama tíma hefur dalurinn styrkst gagnvart öðrum myntum t.d. gagnvart krónu sem jafnar út lækkunaráhrifin að stórum hluta.

Flugfargjöld hafa lækkað í nóvember undanfarin fjögur ár. Að meðaltali hefur lækkunin numið 15% en tölfræðilíkan Greiningardeildar gerir ráð fyrir því að lækkunin í ár verði eilítið meiri eða um 18% (0,23 áhrif á VNV).

Fasteignaverð hækkað um 14,1% á landsbyggðinni

Undanfarna 12 mánuði hefur fasteignaverð á landinu hækkað um 5,8% samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Fasteignaverð á landsbyggðinni hefur hækkað um 14,1% en fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 3,6% og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 5,0%. Mælingar á ásettu verði í fasteignaauglýsingum hafa verið í ágætu samræmi við þessa þróun. Árstaktur ásetts verðs hefur farið lækkandi samhliða lækkandi fasteignaverði, en árstaktur ásetts verðs er hinsvegar lægri en mæling Hagstofunnar gefur til kynna. Því er líklegt að áfram dragi úr árstakti í mælingum Hagstofunnar. Í mánaðarlegu verðbólguspánni gerir Greiningardeild heilt yfir ráð fyrir að reiknuð húsaleiga (fasteignaverð) hækki um 0,33% eða 4,0% á ársgrundvelli.