Stjórn Viðreisnar hefur staðfest framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 29. október næstkomandi. Listann leiðir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, ásamt Hildi Betty Kristjánsdóttur, deildarstjóra í Naustaskóla á Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Viðreisn.
Hér má svo sjá efstu fimm sæti lista flokksins í kjjördæminu:
1. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, Reykjavík
2. Hildur Betty Kristjánsdóttir, deildarstjóri, Akureyri
3. Jens Hilmarsson, lögreglumaður, Egilsstöðum
4. Ester Sigurásta Sigurðardóttir, verkefnastjóri, Vopnafirði
5. Hjalti Jónsson, sálfræðingur og tónlistarmaður, Akureyri