Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Justikal kynnti í dag nýja lausn á markað sem gerir lögmönnum og öðrum aðilum dómsmála kleift að senda gögn rafrænt til héraðsdómstóla. Lausnin hefur verið í þróun síðastliðin 4 ár og liggur nú fyrir samþykki frá Dómstólasýslunni fyrir notkun lausnarinnar fyrir héraðsdómstólum eftir að lausnin var prófuð í tilraunaverkefni með Landsrétti og fimm stærstu lögmannsstofum landsins. Félagið stefnir á að koma lausninni á markað í Evrópu á næsta ári.

Skjöl sem innihalda rafrænar undirskriftir er ekki hægt að prenta út þar sem þá missa rafrænu undirskriftirnar gildi sitt. Þess vegna byggir Justikal á eIDAS vottuðum traustþjónustum sem geta sannreynt gildi rafrænna undirskrifta í samræmi við lög nr. 55/2019.

„Þetta er gríðarlega mikilvægt til þess að málsmeðferð í dómsmálum sé í takt við þá stafrænu þróun sem hefur átt sér stað. Núna með lögum nr. 55/2019 eru réttaráhrif rafrænna skjala skilgreind sérstaklega. Með því að nýta þá tækni sem stendur lögmönnum og dómstólum í dag til boða ætti að vera hægt að stytta málsmeðferðartíma og fækka óþarfa frestum,” segir Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdarstjóri og stofnandi Justikal, í tilkynningu. Hún starfaði fyrir tíma félagsins sem lögmaður við hefðbundin málsflutning og kynnist af eigin reynslu starfsháttum lögmanna.

Lausnin er nýr valkostur sem stendur lögmönnum til boða við framlagningu skjala í héraðsdómi. Þeir sem velja að senda gögn rafrænt geta stofnað mál í Justikal. Aðrir málsaðilar, eins og lögmaður gagnaðila og skjólstæðingar, geta síðan einnig lagt fram skjöl eða fengið lesaðgang til þess að fylgjast með framvindu sinna mála og fá sjálfvirkar tilkynningar þegar nýir atburðir verða í dómsmálum sem tengjast þeim.

„Við leggjum mikla áherslu á öryggi við meðferð viðkvæmra skjala, þess vegna notum við rafrænar traustþjónustur í samræmi við eIDAS reglugerðina til þess að tryggja að öll meðhöndlun sé sem öruggust. Öll gögn eru til að mynda rafrænt innsigluð með fullgildum tímastimpli sem staðfestir áreiðanlega hvenær gögnin voru send. Þetta getur skipt lögmenn miklu máli þar sem tímafrestir eru mjög mikilvægir og rík sönnunarbyrði er á lögmönnum að hafa mætt tímafrestum. Það má segja að lögmenn og aðrir séu ekki lengur bundnir við opnunartíma dómstólanna til að geta komið gögnum á framfæri til þeirra innan tímafrests," segir Margrét Anna.

Justikal fékk styrki frá Tækniþróunarsjóð Íslands árin 2018 og 2021 til þess að þróa lausnina.