Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, var kjörinn formaður Samtaka orkusveitarfélaga á aðalfundi samtakanna sem fram fór í liðinni viku. Stefán Bogi tekur nú við formennskunni af Gunnari Þorgeirssyni, oddvita Grímsnes- og Grafningshrepps. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Samtökunum.
Á sama fundi var einnig samþykkt inntökubeiðni Blönduósbæjar í samtökin og eru aðildarsveitarfélögin þar með orðin 21 talsins.
Samtök orkusveitarfélaga voru stofnuð árið 2011 og er markmið þeirra einkum að standa vörð um hagsmuni aðildarsveitarfélaga í öllum málum sem tengjast byggingu orkuvera og virkjana, orkunýtingu, fjárhagslegum hagsmunum í þessu sambandi og umhverfismálum.
Megináhersla hefur verið lögð á að þrýsta á um nauðsynlegar breytingar í skattaumhverfi orkuframleiðslu, með áherslu á fasteignagjöld, en einnig hafa samtökin látið sig varða lagaumhverfi vindorkuframleiðslu ásamt fleiri þáttum.
Nýr stjórnarformaður samtakanna er Stefán Bogi Sveinsson, sveitastjórnarmaður frá Fljótdalshéraði.