„Ég hef óskað eftir því við formann stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan þau mál sem komið hafa upp verða skoðuð og úttekt gerð á vinnustaðarmenningu fyrirtækisins," segir í tilkynningu frá Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orkuveitunnar.

Er Bjarni að vísa í mál sem tengist brottrekstri Bjarna Más Júlíussonar úr starfi framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar á fimmtudaginn. Hefur Orkuveitan staðfest að Bjarni Már hafi verið rekinn vegna óviðeigandi framkomu við starfsfólk.

„Ég tel afar mikilvægt bæði í þágu starfsmanna og almennings að sú skoðun fari fram, segir í yfirlýsingu Bjarna Bjarnasonar. „Þar mega mínar ákvarðanir ekki vera undanskildar. Því tel ég rétt að víkja tímabundið á meðan málið er skoðað. Starfsfólk OR hefur lagt mikið á sig á síðustu árum við að byggja fyrirtækið upp á ný úr krappri stöðu. Sú vinna hefur ekki síst snúið að auknu jafnrétti kynjanna og bættri vinnustaðarmenningu. Áríðandi er að halda þeirri mikilvægu vinnu áfram."

Í kjölfarið á tilkynningu forstjóra Orkuveitunnar kom tilkynning frá Brynhildi Davíðsdóttur, stjórnarformanni Orkuveitunnar, þar sem segir að ósk forstjórans um að stíga tímabundið til hliðar verði tekin fyrir á fundir stjórnar eins fljótt og auðið er.

„Þegar hefur verið óskað eftir því við Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að gerð verði úttekt á vinnustaðarmenningu og tilteknum starfsmannamálum. Undirbúningur hennar er þegar hafinn," segir í tilkynningu Brynhildar.