Næst stærsti hluthafinn í Icelandair Group er bandaríski vogunarsjóðurinn PAR Capital Management. Stjórnendur sjóðsins einbeita sér að fjárfestingum í flug- og ferðageiranum og þannig hefur PAR Capital lengi verið meðal stærstu hlutahafa United Airlines. Nú hefur stjórnarmaður PAR Capital selt öll sín hlutabréf í United Airlines. Frá þessu er greint á vef Túrista .

Forsvarsmenn vogunarsjóðsins voru þó ekki ánægðir með gang mála hjá bandaríska flugfélaginu í ársbyrjun 2016 og vildu forstjórann burt. Sá hélt þó velli en til að ná sáttum við PAR Capital og annan vogunarsjóð var fjölgað í stjórn flugfélagsins. Þá tók Edward Shapiro, einn af stofnendum PAR Capital, sæti í stjórninni.

Shapiro þessi hefur verið stjórnarmaður hjá United Airlines allar götur síðan. Hann komst hins vegar í viðskiptafréttirnir fyrir helgi þegar sagt var frá því að hann hafði selt öll hlutabréf sín í flugfélaginu síðastliðinn þriðjudag.

Shapiro hefur fengið rúmlega 700 milljónir króna fyrir 157 þúsund hluti í United en vikuna áður hafði hann losað sig við 25 þúsund hluti.