Félag viðskipta- og hagfræðinga hélt á dögunum fund á Nauthól undir yfirskriftinni: „Stórsköpun - Hvernig selja má íslensk fyrirtæki á milljarða?"
Á fundinum hélt Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins, erindi um stórsköpun. Í kjölfarið tóku við pallborðsumræður með Ástu Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, Þorsteini Friðrikssyni, stofnanda Plain Vanilla, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins.
Helga Valfells, einn af stofnendum nýsköpunarsjóðsins Crowberry Capital, var fundarstjóri.
Tryggvi Hjaltason fjallaði meðal annars um stórsköpun og ræddi hindranir og tækifæri íslenskra fyrirtækja í útrás og vexti.
Andri Heiðar Kristinsson, forstjóri Travelade.
Ísak Einar Rúnarsson, sérfræðingur á hagfræðisviði Viðskiptaráðs og Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs.
Hallur Jónasson, viðskiptastjóri hjá SAHARA auglýsingastofu.