Á borgarstjórnarfundi sem fram fór í gærkvöldi var samþykkt tillaga frá borgarfulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um að Strætó aki á 7,5 mínútna fresti á háannatímum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Í tillögunni kemur fram að borgarstjórn feli stjórn Strætó að móta útfærslu á því að auka aksturstíðnina.

Borgarstjórn óskar ennfremur eftir upplýsingum um farþegafjölda á hverri leið, núverandi kostnað við hverja leið og mati á því frá stjórninni hversu mikið það myndi auka kostnaðinn að auka tíðnina á hverri leið. Í dag ekur Strætó með 10 mínútna tíðni á þessum leiðum sem umræði en stefnt er að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna fresti frá og með ársbyrjun 2020.

Í greinargerð með tillögunni segir að aukin tíðni á stofnleiðum Strætó á háannatímum sé hagkvæm til að auka þjónustu á þeim leiðum þar sem eftirspurnin er hvað mest.

Tillagan gerir ráð fyrir samkomulagi við önnur sveitarfélög sem taka þátt í rekstri byggðasamlagsins Strætó þar sem hún krefst fjárútláta frá sveitarfélögunum og kallar því á leiðakerfisbreytinga. Til að tími gefist til að vinna málið innan hefðbundinna tímaramma fjárhagsáætlunargerðar og leiðakerfisbreytinga er stefnt að því að fyrstu áfangar breytinganna taki gildi í ársbyrjun 2020.