Samtök iðnaðarins telja frumvarp til breytinga á lögum um fjarskipti fela í sér að íslensk fjarskiptafyrirtæki sæti strangari reglum en samkeppnisaðilar á innri markaðinum.

Um er að ræða innleiðingu EES gerðar en SI telja að á árunum 2013-2016 hafi Alþingi sett strangari reglur en þörf var á í þriðjungi tilvika. „Fyrirliggjandi frumvarp er enn eitt frumvarpið sem felur í sér slíka gullhúðun þar sem lagt er til að íslensk fyrirtæki sæti strangari reglum en samkeppnisaðilar á innri markaðnum.“

Þetta kemur fram á vef Samtaka iðnaðarins í tengslum við umsögn samtakanna um frumvarpið. Í umsögninni eru gerðar athugasemdir við einstaka hluta frumvarpsins, þar á meðal þar sem fjallað er um skyldur rekstraraðila varðandi þráðlausan fjarskiptabúnað, álagningu stjórnvaldssekta og ákvæði um markaðseftirlit. Ennfremur gera samtökin athugasemd við innleiðingaraðferð sem er að mörgu leyti ónákvæm og skortir verulega á að reglurnar sem settar eru, séu einfaldar og skilvirkar. Leggja því samtökin til breytingar á frumvarpinu.