Stærsti fjárhagslegi bakhjarl UK Independence party, Arron Banks, styður Raheem Kassam sem nýjan leiðtoga flokksins og segir hann ,,langsamlega gáfaðasta frambjóðandann".

Kassam var einn af aðstoðarmönnum Nigel Farage, fyrrum formanns flokksins, en hann er ritstjóri hægrisinnuðu og bandarísku fréttasíðunnar Breitbart fyrir London.

Styður Trump og fordæmir Íslam

Facebook síða hans lýsir því yfir að hann hafi hlotið verðlaunin íslamshatari ársins árið 2014 og hann auglýsti boli sem lýsti yfir stuðningi Breta á Trump sem hann sagðist hafa gert að bón vina.

Kassam yfirgaf flokkinn í sumar og fór ófögrum orðum um flokksmenn, en gekk svo aftur í hann á ný.

Gefið meira en 175 milljónir króna

,,Þetta er meiriháttarstuðningur frá manni sem hefur verið einn af drifkröftum UKIP á síðustu árum," sagði Kassam. ,,Herra Banks nýtti eigin tíma og fjármagn í þjóðaratkvæðagreiðsluna og flokkinn og fyrir þá sem velta fyrir sér hvort hann standi enn með flokknum, þá er þetta skýrt merki: hann gerir það, undir minni stjórn."

Síðan í október 2014 hefur Banks og Rock Services, sem hann stýrir, gefið meira en 1,25 milljón pund, eða sem nemur 175 milljónum króna til flokksins og starfs hans.