Erlend greiðslukortavelta á Íslandi nam 18,6 milljörðum króna í apríl, borið saman við 14,6 milljarða í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða tæplega 28% aukningu milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu Rannsóknarseturs verslunarinnar (RSV), sem birtir mánaðarlega tölur um greiðslukortaveltu ferðamanna hér á landi.

Greiddu að jafnaði 121 þúsund krónur

Mest jókst erlend kortavelta í bensíni, viðgerðum og viðhaldi, um 76,5% og dagvöruverslun 66,2% í apríl síðastliðnum. Aukning erlendrar kortaveltu dagvöruverslana umfram aðra liði kann að vera til marks um breytt neyslumynstur erlendra ferðamanna. Stærsti einstaka liður kortaveltu erlendra ferðamanna eru farþegaflutningar með flugi og nam kortavelta aprílmánaðar 4,5 milljörðum króna og jókst um 38,1% frá apríl í fyrra.

Erlendir ferðamenn greiddu 33,9% meira með kortum sínum til hótela og gistiheimila í apríl síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra. Kortavelta flokksins nam 3,3 milljörðum í apríl samanborið við 2,5 í apríl 2016. Þá var erlend kortavelta á veitingastöðum 1,9 milljarðar króna í apríl eða 34,3% meiri en í sama mánuði í fyrra.

Aukning kortaveltu í flokknum ýmis ferðaþjónusta sem inniheldur meðal annars þjónustu ýmissa ferðaskipuleggjenda, dagsferðir og fleira var 13% í apríl og nam 2,5 milljörðum í apríl í ár samanborið við 2,2 milljarða í sama mánuði 2016.

Fataverslun jókst um 27,7%, gjafa- og minjagripaverslun um 19,3% og tollfrjáls verslun um 32,6%. Önnur verslun dróst saman um tæplega 1% frá apríl í fyrra.

Fjöldi ferðamanna um Keflavíkurflugvöll samkvæmt mælingu ferðamálastofu var ríflega 153.500 í apríl síðastliðnum samanborið við 94.900 ferðamenn í apríl í fyrra. Um er að ræða 61,8% aukningu á milli ára.

Ef miðað er við fjölda erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll greiddi hver þeirra að jafnaði með greiðslukorti sínu fyrir 121 þús. kr. í apríl, eða um 3% meira en í mars. Það er um 21% lægri upphæð en í sama mánuði í fyrra.

Gengisáhrif krónunnar

Í tilkynningu RSV segir að þrátt fyrir rúmlega fjórðungs aukningu í veltu milli ára virðist nokkuð vera að draga úr þeim mikla hlutfallslega vexti sem verið hefur í kortaveltu erlendra ferðamanna undanfarin misseri. Vöxtur síðustu þriggja mánaða (febrúar til apríl) frá sama tímabili í fyrra hefur verið 29% en að meðaltali var árlegur hlutfallsvöxtur síðustu 12 mánuði þar á undan 52%. Vöxturinn í apríl er einnig minni í krónum talið en frá apríl 2016 jókst kortaveltan um 4 milljarða samanborið við 5,3 milljarða í apríl í fyrra.

Segir RSV að ekki sé ótrúlegt að sterkara gengi eigi þátt í því að kortavelta vex minna nú en áður. Gengi krónunnar var 17,5% hærra gagnvart helstu viðskiptagjaldmiðlum í apríl síðastliðnum borið saman við apríl 2016.