Arion banki og fimm lífeyrissjóðir hafa tekið yfir 98,13% hluta félagsins. Á fundinum var Þórður Ólafur Þórðarson kjörinn nýr stjórnarmaður en auk hans skipa stjórnina þau Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Jakob Bjarnason, stjórnarformaður félagsins. Þetta staðfestir Karen Kjartansdóttir, upplýsingafulltrúi United Silicon í samtali við Viðskiptablaðið.
Líkt og Viðskiptablaðið hefur áður greint frá þá veitti Héraðsdómur Reykjaness félaginu framlengingu á heimild til greiðslustöðvunar til þriggja mánaða, eða til 4. desember. Stjórn félagsins vinnur áfram að endurskipulagningu félagsins og hefur stuðning hluthafa til að leita nýrra fjárfesta og leiða viðræður við þá að sögn upplýsingafulltrúans.