Stjórn Neytendasamtakanna hefur gripið til aðgerða til að takmarka aðgang Ólafs Arnarsonar, formanns samtakanna, að daglegum rekstri. Hann er ekki lengur starfsmaður skrifstofu og hefur ekki heimildir til að skuldbinda samtökin né að efna til nokkurra útgjalda af hálfu þeirra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni sem birt var á heimasíðu samtakanna í dag. Þar kemur einnig fram að bág staða samtakanna sem olli því segja þurfti upp öllu starfsfólki þess sé til komin vegna óhóflegra útgjalda sem formaður samtakanna, Ólafur Arnarson, hefur efnt til án aðkomu stjórnar. Þegar stjórn varð ljóst hver staðan var lýsti hún yfir vantrausti á formanninn og skoraði á hann að stíga til hliðar. Segir að þrátt fyrir að formanni hafi verið gerð grein fyrir alvarleika málsins, sem hann ber að miklu leyti ábyrgð á, sitji hann sem fastast.

Stjórnin segir ljóst að fara þurfi í aðgerðir til að bjarga samtökunum og sé það mat bæði stjórnar og starfsmanna að slíkt verði ekki gert með formanninn innanborðs.