Icelandair fékk sérfræðinginn, Douglas F. Goldberg, til að áætla fyrir sig kostnað við nýjan flugvöll í Hvassahrauni. Niðurstaðan var að nýr flugvöllur í Hvassahrauni yrði ódýrari en stækkunaráform Isavia á Keflavíkurflugvelli. Um þessar mundir hefur verið hafin vinna við annað mat og niðurstaða á því endurbætta mati mun liggja fyrir á næstu vikum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra lagði í morgun fyrir ríkisstjórn minnisblað þar sem lagt er til að veðurmælingar og flugprófanir hefjist í Hvassahrauni á komandi hausti.

„Af þessu tilefni setti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið af stað starfshóp, undir formennsku Eyjólfs Árna Rafnssonar verkfræðings, til að skoða málið nánar. Starfshópurinn, sem skilar skýrslu sinni á næstu vikum, fékk sama ráðgjafa, Doug F. Goldberg, til að áætla fyrir sig kostnað við gerð flugvallar í Hvassahrauni með sömu afköst og þjónustu og Isavia reiknaði með í sínum áætlunum fyrir Keflavíkurflugvöll árið 2025. Mikilvægt er að ljúka nauðsynlegum veðurmælingum og flugprófunum á svæðinu áður en hægt er að taka ákvörðun um það sem mögulegt flugvallarstæði. Í framhaldi þyrfti svo að fara í viðræður við sveitarfélögin og landeigendur, vinna að skipulagsbreytingum og vinna umhverfismat," segir í svari Sigtryggs Magnasonar, aðstoðarmanni Sigurðar Inga, við fyrirspurn Viðskiptablaðsins.

„Ferli fyrir nýjan flugvöll í Hvassahrauni og svo bygging vallarins og ýmissa mannvirkja tekur að lágmarki 15 ár frá ákvörðun þar til flugvöllurinn er tilbúin til notkunar. Reyndar ráðleggur OECD að miðað sé við 20-30 ár að lágmarki með öllum undirbúningi þegar nýr flugvöllur er byggður. Af þessu er ljóst að ef ekki á að stöðva vaxtarmöguleika flugs og ferðaþjónustu hér á landi næstu 15-20 árin þarf að halda áfram uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli. Engu að síður kann að verða hagkvæmt á síðari stigum, ef vöxtur í flugi heldur áfram, að mæta þeim vexti með byggingu flugvallar í Hvassahrauni en þá þarf að undirbúa það með góðum fyrirvara. Af þeirri ástæðu er talið skynsamlegt að kynna hugmyndirnar fyrir sveitarfélögunum sem hlut eiga að máli, ráðast sem fyrst í þær veðurmælingar og flugprófanir sem þörf er á, en kostnaður við þær er áætlaður 30-50 milljónir króna og að þær taki allt að tvö ár. Þessar athuganir eru jafnframt nauðsynlegar ef byggja á upp í Hvassahrauni aðstöðu fyrir innanlands- eða kennsluflug sem brýnt er orðið."