Icelandair tapaði 55,6 milljónum Bandaríkjadala árið 2018 sem var mikill viðsnúningur frá árinu 2017 þegar hagnaðurinn nam 37,5 milljónum dala. Þetta samsvarar miðað við gengi dagsins í dag að hagnaður upp á 4,5 milljarða árið 2017 varð að 6,7 milljarða króna tapi á síðasta ári hjá félaginu.

Ljóst er að tapið kom að miklu til af fjórða ársfjórðungi, en þá nam það 57,3 milljónum dala, en tapið á sama tímabili fyrir ári, það er í október, nóvember og desember nam 39,7 milljónum. Tekjur tímabilsins námu 298,8 milljónum dala, sem 2% aukning frá fyrra ári þegar þær námu 291,6 milljónum.

Á sama tíma jukust tekjur félagsins þó um 7% á milli ára og námu 1,5 milljörðum dala, eða sem samsvarar tæplega 182,8 milljörðum íslenskra króna. EBITDA félagsins á fjórða ársfjórðungi var neikvæð um 35,0 milljónir dala, og lækkar á milli ára, eiginfjárhlutfall félagsins í lok ársins nam 32% og handbært fé þess 299,5 milljónum dala.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir árið 2018 hafa verið erfitt rekstrarár. „Rekstarniðurstaðan var mun lakari en lagt var upp með í byrjun árs og endurspeglar harða samkeppni í millilandaflugi, lág og oft ósjálfbær fargjöld og mikla hækkun eldsneytisverðs. Jafnframt höfðu breytingar á sölu- og markaðsstarfsemi félagsins, sem og ójafnvægi í leiðarkerfi neikvæð áhrif á afkomuna, eins og áður hefur verið kynnt, “ segir Bogi.

„Markmið okkar er skýrt; að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar. Nú þegar hafa verið gerðar breytingar á skipulagi félagsins sem endurspegla áherslur á kjarnastarfsemina, flugrekstur. Unnið er að  fjölmörgum aðgerðum bæði á tekju- og kostnaðarhlið sem eiga að skila sér í bættum rekstri strax á árinu 2019. Þar má meðal annars nefna breytingu á framboði sem stuðlar að betra jafnvægi milli Evrópu og N-Ameríku í leiðarkerfi félagsins sem auðveldar stýringu þess og hámörkun tekna.

Þá höfum við lagt aukna áherslu á hliðartekjur sem þegar hefur skilað árangri, sölu- og markaðsstarf félagsins verið eflt, auk þess sem innleiðing á nýju tekjustýringakerfi er á lokametrunum. Í vor, til viðbótar við núverandi tengibanka, hefst flug í nýjum tengibanka sem mun bæta nýtingu flota og flugáhafna, auka framboð og tekjur félagsins. Þar að auki er unnið að endurskoðun innanlandsflugs félagsins.

Ljóst er að áfram ríkir óvissa í rekstrarumhverfi félagsins auk þess sem breytingar eru að eiga sér stað í samkeppnisumhverfinu. Það býr hins vegar mikill kraftur og þekking í félaginu og starfsfólki okkar. Fjárhagstaðan er sterk og ég er sannfærður um að við séum vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir og grípa þau tækifæri sem framundan eru.“