Icelandair tapaði rúmlega 40 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 4,1 milljarði íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, sem er nálega tvöföldun frá fyrra ári þegar tapið nam 22,9 milljónum dala.

Hagnaður Icelandair dróst saman á árinu 2017 niður í 37,7 milljónir Bandaríkjadala úr 89,1 milljón dala árið 2016 eða um 58%. Hagnaður ársins samsvaraði um 3,9 milljörðum króna í heildina, sem er minna en tapið á fjórða ársfjórðungi.

EBITDA ársins 2017 var 170,2 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 219,8 milljónir USD árið 2016. EBITDA spá fyrir árið 2018 nemur 170-190 milljónum Bandaríkjadala. EBITDA á 4. ársfjórðungi var neikvæð um 16,9 milljónir dala og lækkar á milli ára, en á sama tíma fyrir ári var EBITDA félagsins jákvæð um 2,45 dali.

Heildartekjur félagsins jukust samt sem áður um 14% á 4. ársfjórðungi og eiginfjárhlutfall í lok ársins er 42% en fyrir ári var það 44%. Heildareignir félagsins jukust milli ára um 9%, fóru úr tæplega 1,3 milljörðum Bandaríkjadala í rúma 1,4 milljarða, eða sem nemur 145 milljarðar íslenskum krónum.

Segir farþega aldrei hafa verið fleiri

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair segir afkomu ársins hafa verið í takt við afkomuspá félagsins. „Arðbær vöxtur félagsins heldur áfram og sterk fjárhagsstaða og sveigjanleiki gera okkur kleift að bregðast við aðstæðum og grípa ný og spennandi tækifæri á markaði. Icelandair flutti rúmlega fjórar milljónir farþega í millilandaflugi á árinu og hafa þeir aldrei verið fleiri,“ segir Björgólfur.

„Í lok þessa mánaðar fáum við afhenta fyrstu Boeing 737-MAX vélina. Það eru ákveðin tímamót, upphafið að endurnýjun flugflotans, sem er stórt og spennandi verkefni. Við höfum á undanförnum mánuðum gert breytingar á vöruframboði okkar meðal annars með nýjum fargjaldaflokki,  Economy Light. Jafnframt hafa verið kynntir sjö nýir áfangastaðir í leiðarkerfinu.  Nýjungar og breytingar sem þessar endurspegla þann sveigjanleika og fjárhagslega styrk sem félagið hefur til að bregðast við á kvikum markaði.

Mikil samkeppni er á öllum okkar mörkuðum. Bókunarstaða í millilandaflugi er góð á fyrri árshelmingi en töluverð óvissa er á síðari hluta ársins, einkum hvað varðar þróun meðalfargjalda. Afkomuspá félagsins fyrir árið 2018 endurspeglar þessa óvissu en gert er ráð fyrir að EBITDA ársins verði 170-190 milljónir USD.

Í upphafi þessa árs kynntum við nýtt skipulag félagsins. Með því næst fram skýrari áhersla á kjarnastarfsemi okkar auk þess sem það stuðlar að einföldun ferla, styttri boðleiðum og aukinni hagkvæmni í rekstri.  Þannig munum við vera betur í stakk búin til að takast á við síbreytilegt umhverfi fyrirtækja, með aukinni alþjóðavæðingu og tækniframförum.  Starfsfólk félagsins hefur að venju skilað framúrskarandi starfi og viðskiptavinir haldið tryggð við félagið – það erum við þakklát fyrir.“