Jakob Ólafsson var tekjuhæstur meðal flugfólks landsins í fyrra og námu tekjur hans að jafnaði tæplega 6,3 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Næst tekjuhæstur á meðal flugfólks var flugumferðarstjórinn Gunnlaugur Guðmundsson en mánaðartekjur hans námu að jafnaði 5,4 milljónum á mánuði.

Fimm tekjuhæsta flugfólkið árið 2018:

  1. Jakob Ólafsson, flugstj. Landhelgisgæslan             6,277 milljónir
  2. Gunnlaugur Guðmundsson, flugumferðarstj.            5,378 milljónir
  3. Helgi Björnsson, flugumferðarstj.                               3,169 milljónir
  4. Þórhallur Haukur Reynisson, flugrekstrarstj. Icelandair 3,146 milljónir
  5. Úlfar Henningsson, flugstj. Icelandair                        3,111 milljónir

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .