Tekjur íslenskra fjölmiðla lækkuðu lítillega á árinu 2017 frá fyrra ári, að því er kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands , eða um 2%. Samtals námu tekjur allra miðla tæpum 28 milljörðum króna, tekjur af notendagjöldum voru tæpir 15 milljarðar króna og auglýsingatekjur voru rúmar 13 milljarðar króna. Helmingur tekna fjölmiðla fellur til sjónvarps og fjórðungur til dagblaða og vikublaða. Til tímarita og annara blaða falla 5% af tekjunum, 13% til hljóðvarps og 7% til vefmiðla.

Hlutdeild einkarekinna fjölmiðla nam 78% af samanlögðum tekjum á fjölmiðlamarkaði og 84% af auglýsingatekjum. Þannig var hlutur Ríkisútvarpsins 16% af auglýsingatekjum og 22% af heildartekjum. Hlutdeild Ríkisútvarpsins hefur verið nokkuð stöðug síðastliðna tvo áratugi en árið 1997 var hlutur ríkisins 26%. Árið 2017 var hlutdeild Ríkisútvarpsins í auglýsingatekjum hljóðvarps 34% og 48% af auglýsingatekjum sjónvarps. Samanlögð hlutdeild ríkisútvarpsins á útvarpsmarkaði árið 2017 var 41%.

Umtalsverður samdráttur varð í tekjum fjölmiðla í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Frá árunum 2007 til 2010 lækkuðu tekjur fjölmiðla um ríflega fjórðung reiknað á verðlagi ársins 2017. Síðan þá hafa tekjurnar aukist lítillega og eru nú sambærilegar við það sem var í kringum aldamótin og næstu árin þar á eftir. Þrátt fyrir þennan mikla samdrátt var þetta minni samdráttur hérlendis en hjá fjölmiðlum í öðrum löndum. Mestu munaði um samdrátt í auglýsingatekjum, en þær eru nú 28 af hundraði lægri en þegar þær voru hæstar árið 2007, reiknað á föstu verðlagi. Á sama tíma hafa áskrifartekjur lítillega hækkað eða um einn af hundraði.

Tekjusamdráttarins gætir á ólíkan hátt eftir miðlum. Hann er tilfinnanlega mestur í útgáfu blaða og tímarita, sem rekja má að miklu leyti til breyttrar fjölmiðlanotkunar með tilkomu nýrra og fjölbreyttari leiða við miðlun sjónvarps og myndefnis, sífellt aukinnar netnotkunar almennings og greiðslu auglýsenda fyrir birtingu auglýsinga á erlendum vefmiðlum. Tekjur af útgáfu blaða og tímarita hafa þannig lækkað hátt í helming að raunvirði frá árinu 2006. Á sama tíma hafa tekjur hljóðvarps aukist um 13 af hundraði og sjónvarps um fjögur prósent, á meðan tekjur vefmiðla hafa meira en fjórfaldast á föstu verðlagi.