Samtök atvinnulífsins telja skynsamlegt að stjórnvöld hvetji almenning til þátttöku í atvinnurekstri með því að veita einstaklingum skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa að því er kemur fram í frétt á vef Samtaka atvinnulífsins . Hægt væri að horfa til Svíþjóðar sem fyrirmyndar, að mati samtakanna, en þar fá svokallaðir fjárfestingarsparireikningar sérstaka skattalega meðferð sem er bæði einföld og gagnsæ. Þetta myndi efla atvinnulífið, leiða til ábata fyrir þá sem fjárfesta, auk þess sem hagur fyrirtækja og ríkissjóðs myndi batna.

Fyrir síðustu aldamót var svipað uppi á teningnum en þá var um hríð hvatt til þátttöku almennings í atvinnulífinu með því að kaupa hlut í hlutafélögum, sem uppfylltu tiltekin skilyrði, veittu rétt til skattaafsláttar upp að ákveðnu marki. Þetta varð til þess að fjölmargir einstaklingar nýttu þennan rétt og eftirspurn eftir bréfum í almenningshlutafélögum jókst mikið. Þetta hjálpaði við að leggja öflugan grunn að hlutabréfamarkaði hér á landi sem áður hafði verið takmarkaður. Á þessum tíma fjölgaði einnig verulega þeim félögum sem skráð voru á markað segir í fréttinni. Aftur á móti varð stór hluti íslenskra verðbréfa verðlítill árið 2008, eins og flestir þekkja og hefur almenningur frá þeim tíma að mestu leyti haldið að sér höndum þegar kemur að hlutabréfakaupum.

Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Nasdaq Iceland, fjallaði um þessi mál í Vísbendingu - vikuriti um viðskipti og efnahagsmál sem út kom 29. júní síðastliðinn. Magnús benti m.a. á sænsku leiðina sem fjallað er um hér að ofan og gæti reynst Íslendingum einnig vel.

Þrátt fyrir að nýlega hafi verið sett lagaákvæði hér á landi sem heimila einstaklingum ákveðinn afslátt frá tekjuskatti við tiltekin kaup hlutabréfa í fyrirtækjum sem uppfylla þröng skilyrði hafa áhrifin orðið takmörkuð. Samtök atvinnulífsins eru þess fullviss að stjórnvöld vilji bæta þar úr enda um sameiginlega hagsmuni fólks, fyrirtækja og stjórnvalda að ræða.