Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH).

Telma hefur reynslu af markaðsmálum, verkefna- og vörustjórnun, en hún starfaði síðast hjá VÍS sem vörustjóri en þar áður sem vörustjóri hjá Póstinum og verkefnastjóri hjá Já.

Telma stundar MBA-nám við Háskóla Íslands og er með BA-próf frá Háskólanum á Bifröst í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Eiginmaður Telmu er Eyþór Mar Halldórsson og eiga þau einn son.

FVH er fagfélag háskólamenntaðs fólks í viðskipta- og hagfræði. Félagið styður við sérfræðinga á þessu sviði með reglulegum fræðslufundum með áherslu á málefni líðandi stundar, endurmenntun og eflingu tengslanets. FVH stendur einnig fyrir kjarakönnun meðal viðskipta- og hagfræðinga ásamt því að gefa út tímaritið Hag.