Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti í dag á blaðamannafundi að hann hyggðist bjóða sig aftur fram til embættisins. Fari svo að hann beri sigur úr bítum mun hann því hefja sitt sjötta kjörtímabil í sumar.

Ólafur Ragnar hefur þegar verið forseti í tæp 20 ár og hefur einungis einn þjóðarleiðtogi í Evrópu sem ekki er af konungsættum setið lengur en hann við stjórnvölinn. Það er Alexander Lukashenko, forseti Hvíta-Rússlands, sem verið hefur í embætti í tæp 22 ár.

Hér að neðan má sjá lista yfir þá núverandi ókonungbornu þjóðhöfðingja sem hafa verið hvað lengst við völd. Í hópi með Ólafi Ragnari má finna hina ýmsu einræðisherra, aðallega frá Afríkulöndum.

Núverandi þjóðhöfðingjar sem hafa verið lengst við völd:

1. Paul Biya (Kamerún) - 40 ár og 293 dagar
2. Mohamed Abdelaziz (Vestur-Sahara) - 39 ár og 232 dagar
3. Teodoro Obiang Nguema Mbasogo (Miðbaugs-Gínea) - 36 ár og 259 dagar
4. Jose Eduardo dos Santos (Angóla) - 36 ár og 221 dagar
5. Robert Mugabe (Simbabve) - 36 ár
6. Ali Khamenei (Íran) - 34 ár og 188 dagar
7. Hun Sen (Kambódía) - 31 ár og 95 dagar
8. Yoweri Museveni (Úganda) - 30 ár og 80 dagar
9. Nursultan Nazarbayev (Kasakstan) - 26 ár og 301 dagar
10. Islam Karimov (Úsbekistan) - 26 ár og 300 dagar
11. Omar al-Bashir (Súdan) - 26 ár og 293 dagar
12. Idriss Déby (Tsjad) - 25 ár og 138 dagar
13. Isaias Afwerki (Eritrea) - 24 ár og 357 dagar
14. Emomali Rahmon (Tadsjikistan) - 23 ár og 151 dagar
15. Alexander Lukashenko (Hvíta Rússland) - 21 ár og 273 dagar
16. Yahya Jammeh (Gambía) - 21 ár og 271 dagar
17. Ólafur Ragnar Grímsson (Ísland) 19 ár og 261 dagar