Eigið fé Eyju fjárfestingafélags nam þremur milljörðum króna í árslok 2018. Hagnaður þess nam tæpum 80 milljónum króna. Markaðurinn greindi fyrst frá.

Eyja er í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur. Stærsta eign félagsins er Eyja fjárfestingafélag II en það félag hélt um hlut í Pizza Pizza, rekstarfélagi Domino's á Íslandi. Afkoma þess var jákvæð um 1,6 milljarða á síðasta ári eftir hið breska Domino's Pizza Group nýtti kauprétt á tæplega helmings hlut í flatbökurisanum í árslok 2017.