Neytendastofa hefur lagt 250.000 kr. stjórnvaldssekt á Tölvutek fyrir villandi fullyrðingar í auglýsingum. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendastofu .

Í auglýsingabæklingi Tölvuteks fullyrti fyrirtækið að það væri umboðsaðili fyrir mörg stærstu tölvumerki heims. Var fyrirtækinu gert grein fyrir því að fái fullyrðingar um að auglýsandi sé umboðsaðili ekki staðist geti það verið til þess að brjóta gegn reglum um óréttmæta viðskiptahætti. Í svari fyrirtækisins kom fram að fullyrðingin væri almenns eðlis og ekki hafi verið vísað til neinna sérstakra merkja annarra en þeirra sem fram koma á sömu blaðsíðu og umrædd fullyrðing.

Í ljósi þess að Tölvutek færði ekki fram nein gögn sem sýndu fram á að félagið væri viðurkenndur umboðsaðili umræddra merkja hefur Neytendastofa bannað fyrirtækinu frekari birtingu umræddrar fullyrðingar.