Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kara Connect hefur lokið 6 milljóna evru fjármögnun, eða sem nemur um 820 milljónum króna, til að byggja upp sölu- og markaðsteymi fyrir erlenda markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Iðunn framtakssjóður, sem er í rekstri Kviku eignastýringar, leiddi fjármögnunina ásamt einkafjárfestum, en fjármögnunin mun styðja við vöxt Köru Connect í Evrópu. Nú þegar hafa yfir tvö hundruð þúsund einstaklingar á Íslandi og Írlandi komist í samband við þá hjálp sem þau þurftu í gegnum Köru.

Kara Connect er fjölhæf stafræn vinnustöð sem tengir sérfræðinga í heilbrigðis- og velferðarumhverfi við skjólstæðinga í leit að hjálp. Kara gerir sérfræðingum kleift að vista viðkvæmar persónuupplýsingar, bóka tíma, fá greiðslur, senda áminningar og eiga örugga fjarfundi við þá sem leita stuðnings hjá þeim.

Kara var stofnuð árið 2015 af þeim Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur fyrrverandi borgarfulltrúa og námssálfræðingi og Hilmari Geir Eiðssyni hugbúnaðarsérfræðingi.

Með fjármögnuninni verður Iðunn stærsti hluthafi Köru Connect. Um er að ræða stærstu fjármögnun nýsköpunarfyrirtækisins til þessa, en áður höfðu Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins og Crowberry Capital fjárfest í félaginu auk einkafjárfesta.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Köru Connect:

"Í faraldrinum breyttust þarfir og viðhorf fólks til aðgengis að alls kyns þjónustu - en sérstaklega varð aukið aðgengi að heilbrigðis- og velferðarkerfinu afar brýn og aðkallandi þörf. Kara er fyrst og fremst aðgengislausn, örugg gátt sem tengir fólk saman, sem þýðir að hún er fullkomið svar við þessari þörf. Meðferð, stuðningur, ráðgjöf og fleira - þetta er allt innan seilingar í Köru. Í þokkabót sér Kara sjálfvirkt um allskonar umsýslumál fyrir sérfræðingana svo þeir geti einbeitt sér að því að vinna mikilvægari hlutann af vinnunni sinni. Köruteymið er búið að byggja upp öflugan og öruggan hugbúnað sem gerir heiminn mun aðgengilegri - og við erum spennt að fá Iðunni að borðinu, því sjóðurinn hefur mikla reynslu af heilsu- og líftæknigeiranum.“

Pétur Richter, fjárfestingastjóri Iðunnar:

„Kara Connect er félag sem passar vel við fjárfestingarstefnu Iðunnar en félagið hefur sýnt fram á þörfina á slíkum stafrænum vettvangi sem félagið hefur þróað. Nú er stefnan sett á frekari landvinninga á erlendum mörkuðum. Við erum spennt að taka þátt í þeirri vegferð með starfsfólki Köru og öðrum hluthöfum."