Atvinnuleysi stóð nokkurn veginn í stað frá fyrsta ársfjórðungi ársins 2018, en á fyrsta ársfjórðungi 2019 reyndist atvinnuþátttaka vera að jafnaði 81% af mannfjölda, eða að meðaltali um 205.700 manns, að því er Hagstofa Íslands greinir frá.

Þar af töldust að meðaltali 6.200 manns vera atvinnulausir eða um 3,0%. Á sama tíma voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar eða um 1,5% starfa, samanber áður útgefnar tölur. Atvinnulausir eru því um tvöfalt fleiri en fjöldi lausra starfa.

Mælt atvinnuleysi var 0,1 prósentustigi hærra, sem er innan skekkjumarka. Hlutfall starfandi stóð einnig í stað frá síðasta ári.
Um 48.900 mannst töldust utan vinnumarkaðar á fyrsta ársfjórðungi 2019. Um 30% þeirra voru eftirlaunaþegar eða um 14.400 manns. Þar á eftir voru námsmenn, um 12.000 manns að meðaltali eða um fjórðungur.

Vinnutími

Á fyrsta ársfjórðungi 2019 voru að jafnaði 183.100 manns á aldrinum 16-74 ára við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins og var meðalheildarfjöldi vinnustunda þeirra 38,8 klukkustundir. Þeir sem voru í fullu starfi unnu þó ívið meira eða að meðaltali um 44 stundir í viðmiðunarvikunni, en heildarfjöldi vinnustunda í hlutastarfi var að meðaltali um 22,6 klukkustundir.