Uppselt er á sýningarsvæði stórsýningarinnar Verk og vit sem verður haldin í fjórða sinn í Laugardalshöll 8.-11. mars næstkomandi en þar munu um 110 fyrirtæki og stofnanir kynna vörur sínar og þjónustu.

Sem dæmi um sýnendur má nefna húsaframleiðendur, verkfræðistofur, menntastofnanir, innflytjendur, fjármálafyrirtæki, tækjaleigur, bílaumboð, steypustöðvar, hugbúnaðarfyrirtæki og starfsmannaleigur.

Fyrstu tvo dagana, 8. og 9. mars, verður sýningin opin fyrir fagaðila en helgina 10.-11. mars verður almenningur jafnframt boðinn velkominn. Síðast þegar sýningin Verk og vit var haldin, árið 2016, var slegið aðsóknarmet en þá sóttu hana um 23.000 gestir.

Mikilvæg fagsýning

„Verk og vit er fyrst og fremst fagsýning. Hún felur í sér einstakt tækifæri fyrir fagaðila, innlenda jafnt sem erlenda til að kynna vörur sínar og þjónustu,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar. „Hún er kjörinn vettvangur fyrir sýnendur til að styrkja tengslanetið, efla samband við núverandi viðskiptavini og bæta nýjum í hópinn.“

Ingibjörg segir að fagsýning eins og Verk og vit sé mikilvæg fyrir iðnaðinn og menntastofnanir, því þar komi aðilar saman og kynna framsæknar nýjungar og þróun í skipulagsmálum, byggingariðnaði og mannvirkjagerð. „Það að uppselt sé á sýningarsvæðið mánuði fyrir sýningu staðfestir það.“

Sýningin Verk og vit er ætluð þeim sem koma að bygginga- og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, menntastofnunum, hönnuðum og ráðgjöfum.

Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.