Félagið Stakksberg áætlar að fjárfesting í úrbótum kísilverksmiðju félagsins í Helguvík muni nema 4,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram fréttatilkynningu frá félaginu. Stakksberg sem er í eigu Arion banka eignaðist kísilver United Silicon í Helguvík eftir að síðarnefndafélagið varð gjaldþrota.

Samkvæmt tilkynningunni miða úrbæturnar miða að því að gera verksmiðjuna fullbúna til framleiðslu, koma til móts við athugasemdir íbúa í Reykjanesbæ og uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar fyrir starfsemi verksmiðjunnar. Tillaga að matsáætlun fyrir nýtt umhverfismat verksmiðjunnar var birt á vef Skipulagsstofnunar í dag en frestur til að skila inn athugasemdum við hana er til 5. desember 2018.

Eins og áður hefur verið fjallað um stöðvaði Umhverfisstofnun rekstur kísilverksmiðjunnar í Helgvík í september 2017 og setti þá ákveðin skilyrði fyrir því að hún yrði gangsett á ný. Í kjölfarið var unnin úrbótaáætlun sem Umhverfisstofnun hefur samþykkt og felur í sér aðgerðir sem miða að því að bæta rekstur verksmiðjunnar og vinna gegn lyktar- og loftmengun.

Meðal þess sem stofnunin gerir kröfu um er að komið verði upp sérstökum skorsteini til að draga úr lyktarmengun og að hreinsun á útblæstri og meðhöndlun á ryki verði bætt. Að auki felur úrbótaáætlun Stakksbergs í sér að allur frágangur á lóð verksmiðjunnar verði bættur sem og aðstaða fyrir starfsfólk. Þá verður sérstakt umhverfisstjórnunarkerfi innleitt og þjálfun starfsfólks bætt.

Stakksberg hefur boðað til íbúafundar í Hjómahöllinni á morgun, miðvikudaginn 21. nóvember, klukkan 20. Á fundinum munu ráðgjafar Stakksbergs kynna fyrirhugaða vinnu við nýtt umhverfismat og hvernig aðkoma almennings verður tryggð í því ferli.